í skólanum í skólanum er skemmtilegt að vera
Já
þá er skólinn byrjaður aftur. Líf og fjör að sjálfsögðu. Ég hefði
haldið að ég fengi kannski að vera í Odda núna sem er heimabyggingin
mín þar sem að þetta er síðasta árið mitt... en neinei við erum send út
í læknagarð. Þar var víst eina stofan sem var laus (ég er alltaf í sömu
stofunni) og nægilega stór fyrir okkur. Nægilega stór þýðir sem sagt að
þröngt mega sáttir sitja, sumir þurfa að snúa sig úr hálsliðnum og í
stofunni eru 36 stólar, þess má geta að við erum 40 á 4.ári og það er
skyldumæting í tíma! Þeir eru svakalega góðir í stærðfræði í
háskólanum.
Þess má geta að við vorum nokkrar að hugsa um að skrá okkur bara í
verkfræði þar sem að við stóðum okkur svo vel við að finna bestu
mögulegu leið til að sitja í tímum, upphaflega komust 16 við borð.
Mér
finnst ég líka hetja að hafa fundið stofuna í læknagarði, ég spurði
einhverja læknanema þar sem ég sá engin stofunúmar nokkurs staðar þegar
ég kom inn. Það vissi engin hvar stofan væri en líklegast fannst þeim
að ég ætti að fara upp á efstu hæð og inn ganginn... þegar ég sá
númerin á stofunum þar uppgötvaði ég að mín stofa væri líklegast í
kjallaranum... sem var og hárrétt!
Það er samt eitt sem er
ósanngjarnt þarna... við fáum tvær pásur og af eðlilegum ástæðum þurfa
allir og þá meina ég ALLIR að pissa í seinni pásunni. Þess má geta að
þarna eru básaklósett, stelpu- og stráka. En allavega eins og ég sagði
þurfa allir að pissa í pásunni og við erum 40, þar af 39 stelpur! Þar
af leiðandi er pásan búin þegar maður er búinn að pissa. Ég meina
aumingja Friðrik, hann missir af öllum umræðunum í pásunni!
Þess
má geta að ég er í mögnuðum áfanga núna, leslistinn okkar er tvær
blaðsíður en við megum velja hvaða bækur við lesum. Flestar áhugaverðu
bækurnar eru bara til á fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri!
Með kveðju frá lestrarhestinum.
PS
mér líkar vel við
blog.is síðuna og er að hugsa um að vera
þar áfram...
þeir sem vilja link verða að kommenta á
þeirri síðu og biðja um hann... fyrstir koma
fyrstir fá!
Posted at 6.9.06 by solmundur