A LUTHERAN DUDE'S WEBSITE!





   



If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed
Friday, June 30, 2006
Gæsun

Já ég lofaði víst myndum frá gæsuninni og hér koma þær. Annars var ég heima hjá tengdó að horfa á Þýskaland-Argentína. Endalaust spennandi leikur en ég var mjög sátt við lokaniðurstöðuna. Fjörið virtist samt fyrst ætla að byrja eftir leikinn þegar stefndi í slagsmál milli Argentínumanna og eitthvað en maður fékk að sjálfsögðu ekkert að sjá það neinei!


Bleika flugan


Massagellur


Caruso


Gæsakassinn ógurlegi

Annars fór ég í ljós um daginn... geðveik gella, komin með bikiní­far og alles... að ví­su eldrautt en jájá það jafnar sig bara!

Posted at 30.6.06 by solmundur
takk fyrir takk takk (5)  

Monday, June 26, 2006
Það er leiðinlegt að blogga á sumrin

  Þess vegna ætla ég ekki að blogga heldur bara sýna ykkur myndur frá  gönguferð KSF í Heiðmörk.  Mér finnst þetta skemmtilegar myndir... ekki af því að ég er góður myndasmiður heldur af því að það er gaman að taka myndir í góðu umhverfi!









Posted at 26.6.06 by solmundur
takk fyrir takk takk (4)  

Thursday, June 15, 2006
random

Ég fór í fjallgöngu á Húsfell í dag... það var gaman. Við keyrðum framhjá Kaldárseli og þar var ekki flaggað, lélegt.

Við vorum að fá innflutningsgjöf... ekki seinna vænna. Að vísu frá afa og ömmu Þorgeirs og ég veit ekki betur en þau hafi þegar gefið okkur skálar. Þetta voru bleik og blá handklæði... Þorgeir má eiga það bleika!

Ég fór til löggunnar með pabba um daginn, kærði vegagerðina. Virkar örugglega ekki, en mátti samt reyna. Spurning um að fá bara lögfræðing í málið... sjálfboðaliðar? Við fórum inn í yfirheyrsluherbergi og mér leið eins og í bíómynd...nema það vantaði byssubeltið á lögguna. En hún brosti jafn ekkert og löggurnar í myndunum

Posted at 15.6.06 by solmundur
takk fyrir takk takk (1)  

Monday, June 12, 2006
sögur af bíl

Já hann Peli bíllinn okkar Þorgeirs hefur nú þurft að þola ýmislegt...
Um helgina fór hann til dæmis vestur í sumarbústað með okkur. Við skemmtum okkur alveg konunglega þrjú saman verð ég að segja þó Peli hafi ekki fengið að taka þátt í öllu fjörinu með okkur! Tjah fjörinu já jújú sofið til hádegis farið þrisvar í pottinn laga kaldavatnsslöngu sem fór í sundur (og við gátum það, ég er ekkert smá stolt), spil og tjah spil... góð ferð ekki spurning!

Reyndar áður en við lögðum af stað ætlaði ég með Pela í olíuskipti... þegar ég bakkaði út úr stæðinu kom gaur og bakkaði á mig... ekki gaman en Tryggingarnar samþykktu í dag að ég hefði verið í 100% rétti þar sem ég var kyrrstæð og tjónið verður borgað! Sjúkket.

En það var sko ekki allt búið fyrir helgina neinei! Svínadalurinn er hrikalegur og ekki bjóðandi fólksbílum að mínu mati og Peli er sko sammála mér. Við lentum nefnilega ofaní MJÖG djúpri holu á miðjum veginum, undirvagninn rakst niður á leiðinni upp úr henni, hljóðkúturinn brotnaði undan, stakkst niður og braut stuðarann! Peli lítur ekki vel út að aftan verð að viðurkenna það. En pabbi ætlar að kíkja með okkur í vegagerðina á morgun til að kvarta og sjá hvort þeir geti ekki borgað allavega einhvern hluta af tjóninu!

Svona er lífið.. niðurstaðan: Góð helgi fyrir mig og Þorgeir, frekar leiðinleg fyrir Pela!

Posted at 12.6.06 by solmundur
takk fyrir takk takk (4)  

Monday, June 05, 2006
gæsaveisla

Jebbs mikið rétt lesendur góðir... ég fékk mína langþráðu gæsun í gær. Finnst frekar fyndið að mig grunaði aldrei neitt. Heiðdís sendi Þorgeiri sms í síðustu viku og spurði hvort ég væri í fríi á sunnudaginn. Ég las sms-ið og svaraði þar sem síminn hans var nær mér en honum. Honum virtist alveg sama og þegar ég fékk ekkert svar frá Heiðdísi um hvað hún væri að spá þá bara hætti ég að pæla. Svo skildi ég ekkert í því hvað Þorgeir var móðgaður yfir því að ég væri að pæla í að fara í fjallgöngu með Styrmi í gær án hans. Svo svaraði Styrmir aldrei hvort hann vildi labba með mér! Lélegt!
Þorgeir var líka kjánalegur á svipinn þegar hann spurði mig hvað ég ætlaði að gera á sunnudaginn... en ég fattaði samt ekki neitt!

En allavega ég bara fann til fjallgöngudót og ætlaði ein á Esjuna, fór svo í messu til að syngja. Það gekk allt saman vel en þegar ég kom út voru hjartalagablöðrur á bílnum mínum... þó fyrst fór mig að gruna eitthvað en var samt ekki alveg viss. Leit hlæjandi í kringum mig en sá engan svo ég fór til að losa blöðrurnar. Já þá komu stelpurnar brunandi. Stelpurnar eru sem sagt Heiðdís, Þóraog Berglind. Þið getið í raun lesið alla söguna á blogginu hennar Þóru en ég lofaði víst samt að blogga.

Allavega það var farið heim til foreldra minna og ég klædd í leðurbuxur af mömmu Berglindar, ég get aldrei litið þá konu sömu augum eftir að ég sá þessar buxur! Og mér var líka skellt í bleikan bol og málum með vængi og slör. Við fórum inn í 10-11 í Hafnarfirði til að kaupa okkur að borða og kók fyrir Þóru. Þar var strákur sem sagði við pabba sinn "Sjáðu pabbi, bleik fluga. Sjáðu hún flýgur.... pabbi má ég sjá bleiku fluguna aftur?" Algjört krútt... en við reyndar borðuðum á Esso 10-11 er léleg búlla!

Því næst var haldið eftir Reykjanesbrautinni, logið að mér að við ætluðum á kaffitár til að gefa mér kaffi en svo var farið í GoKart. Geðveikt gaman... Berglind er kreisí ökumaður og ég reyndi mitt besta en varð pínu hrædd þegar afturendinn var farinn að snúast.. þá stóð mér ekki á sama... tók samt fram úr Þóru!

Því næst var farið í Bláa Lónið þar sem okkar beið axla og höfuðnudd... geðveikt gott, fékk að vísu ekki að liggja á dýnu en samt geðveikt gott! Svo sáum við pör ríða (öðru parinu var bent á að þau ættu að vera að fylgjast með barninu sínu) svo var það gufan og ávaxtabakki ásamt freiðivíni! Yndislegt alveg hreint.

Svo fékk ég að fara heim og skipta um föt áður en við fórum á Caruso, þar hittum við Sólveigu og fengum mjög góðan mat. Og að lokum heim til Heiðdísar í hvítvín, singstar og kynlífsumræður. Ég held því fram að það hafi allir gaman af þessum umræðum... vilji bara ekki viðurkenna það!
Já ekki má gleyma að þar beið mín gæsakassi. Bók um hvernig ég á að ala manninn minn upp, titrandi kall sem þjónar engum tilgangi og egg úr gúmmíi sem titrar ekki og skoppar ekki og gerir sem sagt EKKERT gagn!

Yndislegur dagur sem stendur líklega upp úr sem besti dagur sumarsins þangað til ég gifti mig!

Stelpur ég elska ykkur!

PS myndirnar koma þegar ég fæ þær frá Heiðdísi Wink

Posted at 5.6.06 by solmundur
takk fyrir takk takk (3)  

Previous Page Next Page