Entry: nú færist veturinn yfir Sunday, August 27, 2006



og þá fer að færast líf í bloggheimana. Ég ætla allavega að reyna að bulla eitthvað.
Það hefur svosem ýmislegt bloggnæmt á daga mína drifið síðan ég bloggaði síðast. Síðast fenguð þið myndir frá gæsuninni minni svo ætli það passi ekki vel að þið fáið núna myndir úr brúðkaupinu og brúðkaupsferðinni. Ég bjó til geðveikt flott slædsjó sem ég fékk ekki til að virka svo ég skelli bara inn einni mynd í lokin svo ef þið viljið sjá meira verðið þið bara að kíkja í heimsókn. Eins ef þið voruð í brúðkaupinu með myndavél endilega deila myndunum ykkar með okkur!
Annars buðum við fólki í grill á laugardaginn... ég verð að játa ég vissi ekki að það væri hægt að klúðra því að grilla, kjúllinn var á grillinu í klukkutíma eða meira en allt kom fyrir ekki, hann ákvað bara að grillast ekki og vera rauður inn við beinið. En við fengum kartöflur og grillgrænmeti er það ekki bara fínt? Shades Ísinn hans Þráins var svo borðaður á sunnudeginum yfir spilum og góðum félagsskap, ég elska að spila!
Svo má ekki gleyma því að það var verið að setja Guðna Má í embætti skólaprests á sunnudaginn líka rosa flott, fín prédikun og hempan fer honum bar ágætlega! Annars var verið að ræða það eftir KSF fund hvað þetta er allt formlegt í kringum prestana þegar þeir fá vinnu, það væri gaman ef það hefði verið alvöru athöfn þegar ég var ráðin í mína vinnu... en ég held að það hafi verið tekið í höndina á mér og svo fékk ég lykla (þegar ég var búin að minn á þá). Ég mæli með því að Bónus hafi sérstaka viðhöfn og tilboð þegar næsti 14 ára kassastarfsmaður verður ráðinn!

En hérna kemur myndin njótið þess að skoða hvað ég og maðurinn minn erum sæt!




   2 comments

Guðrun Þóra
September 1, 2006   12:06 AM PDT
 
Með alveg eins bikiní og ég og allt, heppin ertu!
Elín
September 1, 2006   12:10 AM PDT
 
Þið eruð rosalega flott. Innilega til hamingju með giftinguna :)

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments