|
Mér finnst ég líka hetja að hafa fundið stofuna í læknagarði, ég spurði einhverja læknanema þar sem ég sá engin stofunúmar nokkurs staðar þegar ég kom inn. Það vissi engin hvar stofan væri en líklegast fannst þeim að ég ætti að fara upp á efstu hæð og inn ganginn... þegar ég sá númerin á stofunum þar uppgötvaði ég að mín stofa væri líklegast í kjallaranum... sem var og hárrétt! Það er samt eitt sem er ósanngjarnt þarna... við fáum tvær pásur og af eðlilegum ástæðum þurfa allir og þá meina ég ALLIR að pissa í seinni pásunni. Þess má geta að þarna eru básaklósett, stelpu- og stráka. En allavega eins og ég sagði þurfa allir að pissa í pásunni og við erum 40, þar af 39 stelpur! Þar af leiðandi er pásan búin þegar maður er búinn að pissa. Ég meina aumingja Friðrik, hann missir af öllum umræðunum í pásunni! Þess má geta að ég er í mögnuðum áfanga núna, leslistinn okkar er tvær blaðsíður en við megum velja hvaða bækur við lesum. Flestar áhugaverðu bækurnar eru bara til á fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri! Með kveðju frá lestrarhestinum. PS mér líkar vel við blog.is síðuna og er að hugsa um að vera þar áfram... þeir sem vilja link verða að kommenta á þeirri síðu og biðja um hann... fyrstir koma fyrstir fá!
|
| Leave a Comment: |