bull
nýtt blogg
      <description>Hæ hæ og halló!
Ég er hætt að nenna að blogga hér... kíkiði frekar á hina stórmerkilegu síðu
http://solmundur.blog.is
í skólanum í skólanum er skemmtilegt að vera
      <description>Já
þá er skólinn byrjaður aftur. Líf og fjör að sjálfsögðu. Ég hefði
haldið að ég fengi kannski að vera í Odda núna sem er heimabyggingin
mín þar sem að þetta er síðasta árið mitt... en neinei við erum send út
í læknagarð. Þar var víst eina stofan sem var laus (ég er alltaf í sömu
stofunni) og nægilega stór fyrir okkur. Nægilega stór þýðir sem sagt að
þröngt mega sáttir sitja, sumir þurfa að snúa sig úr hálsliðnum og í
stofunni eru 36 stólar, þess má geta að við erum 40 á 4.ári og það er
skyldumæting í tíma! Þeir eru svakalega góðir í stærðfræði í
háskólanum. 
Þess má geta að við... (more)</description>
dagurinn í dag
      <description>gæti orðið besti dagur ævi þinnar ef þú bara notar hann rétt! Hvaða snillingur sagði þessa vitleysu? Ég gerði mitt besta til að nota daginn rétt en það virtust flestir aðrir hafa gaman af því að koma í veg fyrir að hann yrði sá besti... 
Í fyrsta lagi ætluðum við að ná í sjónvarpið okkar í viðgerð sem átti að vera tilbúið á þriðjudaginn... við náðum rétt fyrir lokun en okkur var sagt að tækið væri ekki tilbúið. Við gátum ekki orða bundist og sögðum að þetta væri lélegt það hefði átt að vera tilbúið á þriðjudaginn. Þá var það samþykkt að við fengjum nýtt tæki, hann myndi senda tölvupóst í BT... (more)</description>
jæja já gat skeð
 Blogdrive byrjar að virka akkúrat þegar ég er búin að búa mér til nýja síðu á blog.is og byrjuð að blogga þar! En jæja fyrst þessi er farin að virka er ég að hugsa um að halda mig bara á báðum vígstöðum um sinn og sjá hvað setur. Mér líður vel hérna en ef hún hættir að virka aftur gefst ég líklega alveg upp og færi mig yfir.
En annars held ég að Magni hafið fengið öll atkvæðin sem ég sendi með hugarorkunni í fyrri nótt meðan ég var sofandi því hann stóð sig eins og hetja strákurinn. Endalaust flott og var aldrei meðal þriggja neðstu, þvílík hamingja! Áfram Ísland! Mér fannst samt svolítið... (more)</description>
nú færist veturinn yfir
 og þá fer að færast líf í bloggheimana. Ég ætla allavega að reyna að bulla eitthvað.
Það hefur svosem ýmislegt bloggnæmt á daga mína drifið síðan ég bloggaði síðast. Síðast fenguð þið myndir frá gæsuninni minni svo ætli það passi ekki vel að þið fáið núna myndir úr brúðkaupinu og brúðkaupsferðinni. Ég bjó til geðveikt flott slædsjó sem ég fékk ekki til að virka svo ég skelli bara inn einni mynd í lokin svo ef þið viljið sjá meira verðið þið bara að kíkja í heimsókn. Eins ef þið voruð í brúðkaupinu með myndavél endilega deila myndunum ykkar með okkur!
Annars buðum við fólki í grill á... (more)</description>
Gæsun
 Já ég lofaði víst myndum frá gæsuninni og hér koma þær. Annars var ég heima hjá tengdó að horfa á Þýskaland-Argentína. Endalaust spennandi leikur en ég var mjög sátt við lokaniðurstöðuna. Fjörið virtist samt fyrst ætla að byrja eftir leikinn þegar stefndi í slagsmál milli Argentínumanna og eitthvað en maður fékk að sjálfsögðu ekkert að sjá það neinei! 
Bleika flugan
Massagellur
Caruso
Gæsakassinn ógurlegi
Annars fór ég í ljós um daginn... geðveik gella, komin með bikiní­far og alles... að ví­su eldrautt en jájá það jafnar sig bara!
Það er leiðinlegt að blogga á sumrin
     Þess vegna ætla ég ekki að blogga heldur bara sýna ykkur myndur frá  gönguferð KSF í Heiðmörk.  Mér finnst þetta skemmtilegar myndir... ekki af því að ég er góður myndasmiður heldur af því að það er gaman að taka myndir í góðu umhverfi!
random
      <description>Ég fór í fjallgöngu á Húsfell í dag... það var gaman. Við keyrðum framhjá Kaldárseli og þar var ekki flaggað, lélegt. 
Við vorum að fá innflutningsgjöf... ekki seinna vænna. Að vísu frá afa og ömmu Þorgeirs og ég veit ekki betur en þau hafi þegar gefið okkur skálar. Þetta voru bleik og blá handklæði... Þorgeir má eiga það bleika!
Ég fór til löggunnar með pabba um daginn, kærði vegagerðina. Virkar örugglega ekki, en mátti samt reyna. Spurning um að fá bara lögfræðing í málið... sjálfboðaliðar? Við fórum inn í yfirheyrsluherbergi og mér leið eins og í bíómynd...nema það vantaði byssubeltið á... (more)</description>
sögur af bíl
      <description>Já hann Peli bíllinn okkar Þorgeirs hefur nú þurft að þola ýmislegt...
Um helgina fór hann til dæmis vestur í sumarbústað með okkur. Við skemmtum okkur alveg konunglega þrjú saman verð ég að segja þó Peli hafi ekki fengið að taka þátt í öllu fjörinu með okkur! Tjah fjörinu já jújú sofið til hádegis farið þrisvar í pottinn laga kaldavatnsslöngu sem fór í sundur (og við gátum það, ég er ekkert smá stolt), spil og tjah spil... góð ferð ekki spurning! 
Reyndar áður en við lögðum af stað ætlaði ég með Pela í olíuskipti... þegar ég bakkaði út úr stæðinu kom gaur og bakkaði á mig... ekki gaman en... (more)</description>
gæsaveisla
      <description>Jebbs mikið rétt lesendur góðir... ég fékk mína langþráðu gæsun í gær. Finnst frekar fyndið að mig grunaði aldrei neitt. Heiðdís sendi Þorgeiri sms í síðustu viku og spurði hvort ég væri í fríi á sunnudaginn. Ég las sms-ið og svaraði þar sem síminn hans var nær mér en honum. Honum virtist alveg sama og þegar ég fékk ekkert svar frá Heiðdísi um hvað hún væri að spá þá bara hætti ég að pæla. Svo skildi ég ekkert í því hvað Þorgeir var móðgaður yfir því að ég væri að pæla í að fara í fjallgöngu með Styrmi í gær án hans. Svo svaraði Styrmir aldrei hvort hann vildi labba með mér! Lélegt! 
Þorgeir... (more)</description>